Jæja, það er þá loksins að maður nennir að skrifa eitthvað. Ég verð að tilkynna þér það Sigga mín að Kurt kom ekki í dag, alla vega ekki meðan ég var heima. Ég og Ásgeir eyddum annars rúmum klukkutíma í garði hér rétt hjá, þar sem við sleiktum sólina og þessar 30°c sem hún sendi okkur! Þegar okkur var farið að líða illa vegna snjóleysis ákváðum við að leggja krók á leið okkar heim og koma við í búðinni og splæsa á okkur smá ís. Jammí!
Anywho… alla síðustu viku vorum við í Burg Rieneck með öðrum skátum hvaðanæva úr heiminum. Það sem kom mér hvað mest á óvart var að ég skemmti mér vel og að skátar eru líka fólk! Þetta hafði meira að segja þau áhrif á mig að ég íhuga alvarlega að koma mér í einhvers konar skátastarf (ekki segja hinum skátunum en ástæðan er að ég vil fara aftur á næsta ári…).
Ég hef ekki frá miklu að segja eins og er. Kannski heilladísinn heimsæki mig í kvöld og segi mér eitthvað skemmtilegt sem ég get síðan sagt ykkur frá þegar ég nenni. Ahh jú! Ég er að fara að búa til myndasíðu þar sem ég set inn myndir sem ég hef tekið hér í Þýskalandi. Skrifa veffangið á eftir inná síðuna, hérna til vinstri.
4 athugasemdir
Comments feed for this article
apríl 14, 2007 kl. 9:45 e.h.
Bakkus
Kurt Heineken var rænulaus sökum ölvunar þegar aðför átti að fara fram, svo þú slappst með skrekkinn í þetta sinn, Helga mín.
Einnig var ágætis veður hér á Fróni í dag, ekki núna reyndar það er brjálæðislegt rok svo brjálæðislegt að ég þori ekki út í sígó, 9°C og glampandi sól. Að sjálfsögðu voru því sundlaugar yfirfullar (hma sveik mig í þeim efnum….) og allir úti á peysunni.
Ég verð annars að fara að kenna þér að blogga þótt engin séu ævintýrin í lífi þínu, líkt og hjá mér. „Hvernig skal blogga um ekkert 101“.
apríl 15, 2007 kl. 12:44 f.h.
Heiðrún
Gaman að geta skoðað myndir af heimkynnum þínum þarna úti í Þýskalandinu. Veistu hvað væri enn skemmtilegra? Ef þú sæir þér fært um að skrifa undir fleiri myndir en þú hefur gert nú þegar! 🙂
Hvað er annars málið með bílabrautirnar undir rúminu ykkar?!
apríl 15, 2007 kl. 9:09 f.h.
Helga
Bílabrautirnar eru mottur. Í vetur, þegar hér var skítkalt, voru þær einskonar einangrun þar sem við virtumst vera ein um að hita húsakynni okkar! Núna er hins vegar svo heitt að ég vakna í interrail fíling!
apríl 15, 2007 kl. 9:35 e.h.
Una Guðlaug Sveinsdóttir
Hey, gaman að sjá myndir! Ég skal koma með þér á næsta ári 🙂