Ég ákvað að skrifa blogg. Slæ inn slóðina á wordpress en upp kemur grá, tóm síða með headernum Willis & Associates. Ég hafði slegið inn workshop. Guð einn veit af hverju (ég er reyndar með hugmynd, mig langar í undirmeðvitundinni að vinna svo ég geti verslað meira).
Eins og kom fram í síðustu færslu þá leiðist mér stundum. Ég var því voða sniðug að prófa að gera svona landakort sem sýnir hvert ég hef farið. Komst svo að því að þetta er ekkert gaman. Allir hafa ferðast meira en ég! Nema kannski Ásgeir en hann HATAR að ferðast svo hann telst ekki með! Unu kort fyllir upp hálfan heiminn og hún hefur farið til Afríku! Samt bjó hún á Akureyri (smá fordómar, ég veit).
Ef á að tala um eitthvað fallegt og skemmtilegt get ég svosem reynt það líka. Við Ásgeir fórum ásamt Ekka og Ditu í bíltúr og göngutúr að skoða blómin vaxa (fórum í samskonar ferð í haust, nema þá var horft á laufin falla). Tók fullt af myndum enda gullfallegt þar sem við vorum (er meira að segja orðin pínu brún þar sem sólin fór hamförum :)).
Í gær kom svo pabbi Ásgeirs í heimsókn og ætlar að hann að vera hjá okkur í viku. Þegar við hittum hann á lestarstöðinni var ákveðið að eyða engum tíma og fara beinustu leið í bæinn. Við göngum aðeins um miðbæinn og förum inní nokkrar búðir. Að lokum komum við að stórri verslun sem er á 3 hæðum. Fyrstu 2 er með kvenmannsfötum en sú 3. með karlmanns- og barnaföt. Feðgarnir fara uppá 3. hæð og ég á 2. hæð þar sem ég byrja strax að skoða. Tíminn líður og eftir þónokkrar mínútur fer ég að velta fyrir mér hvort þeir hafi farið úr búðinni án mín þar sem ég var þegar búin að labba um í 10 mínútur og enginn (aka Ásgeir) var farinn að labba á eftir mér með þreytusvip. Ég hleyp hrædd upp á 3. hæð og þarf ekki að litast um lengi áður en ég sé þá feðga skoða föt, með bros á vör! Einu búðirnar sem ég hef áður séð Ásgeir brosa inní eru bílasalan og dótabúðin (við hilluna þar sem bílarnir eru). Ég vona að hann læri af föður sínum sem fyrst! Reyndar… sagði Ólafur að hann hefði lært þetta þegar hann eignaðist börn… hmmm. Er einhver til í að lána mér sitt/sín í smá tíma? 🙂
7 athugasemdir
Comments feed for this article
apríl 18, 2007 kl. 3:31 e.h.
Bakkus
Þið Ásgeir drífið kannski í því að redda mér einu stykki af litlum frænda eða lítilli frænku?
apríl 18, 2007 kl. 7:39 e.h.
Helga
Nei. Ég bað um að fá lánað.
apríl 18, 2007 kl. 9:59 e.h.
Besta mamma
Ég gat nú ekki annað en hlegið af þessari færslu. Var ekkert varið í fötin í kvennadeildinni fyrst að þú varst búin að fá nóg eftir svo stuttan tíma eða vantaði bara Ásgeir og þreytusvipinn svo að þú kæmist í kortastuð. Vonandi fæ ég meira en tíu mínútur í hverri búð þegar ég kem í heimsókn og það verði enginn með þreytu og armæðusvip á eftir mér…………
love you
apríl 18, 2007 kl. 11:31 e.h.
Una Guðlaug Sveinsdóttir
„Samt bjó hún á Akureyri“. Já, það er alveg hreint með ólíkindum að ég hafi yfirleitt séð meira en bakgarðinn heima hjá mér, og sé fær um að eiga samskipti við annað fólk eftir áralanga einangrun á úthjara veraldar! Koma svo Helga! Annars finnst mér kortið mitt mjög fyndið. Sex dagar í Moskvu og… voilà!
Haha, góð búðarsaga 🙂 Ætli þetta endi ekki með því að þú þurfir alltaf að ganga á eftir honum með armæðusvip?
apríl 19, 2007 kl. 9:29 f.h.
Helga
Sjáðu til, mamma mín. Málið var ekki að lítið væri til í kvennadeildinni heldur einfaldlega að ef karlamaður (aka Ásgeir) dvelur sjálfviljugur í FATAbúð lengur en 10 mínútur fer ég að hafa áhyggjur.
apríl 19, 2007 kl. 11:58 f.h.
Bakkus
Kannski þið viljið fá Einar bróður minn lánaðan í viku eða svo? Hann er reyndar ekki barn lengur heldur unglingur, en unglingaveikin er enn á lágu stigi. Reyndar er hann með svipaða skapgerð og ég, sem er viss mínus, en hann fékk verslunargen fjölskyldunnar. M&P fá alltaf ógeð (og þau ELSKA búðir, jafnvel meira en þú Helga mín) því hann tjúllast í öllum fatabúðum og mátar allt sem hann nær í sem honum finnst flott. Hann getur hangið þar klukkustundum saman ef hann fengi að ráða. Stundum spyr hann mig upp úr þurru hvort ég vilji fara með honum í Smáralindina „að skoða föt“.
Mér finnst þetta dálítil misskipting á genum.
apríl 19, 2007 kl. 12:36 e.h.
Gulla
Já Sigga mín, genaskiptingin hefur eitthvað farið úrskorðum hjá ykkur systkinunum. 🙂
En Helga.. .er Ásgeir ekki bara að reyna að segja þér eitthvað??? hmmmmm