Jæja… lífið er ömurlegt!! Ég er búin að horfa á ALLA Sex and the City þættina og hef núna ekkert að gera! Can it get any worse?
Ég var annars að lesa frétt á vísir.is þar sem talað var um reykingabannið. Skemmtilegt fyrirbæri! Þeir banna fólki að reykja á skemmtistöðum og veitingahúsum og senda liðið út. Allt er þetta gott mál þar sem mér finnst að þeir sem ekki reykja eigi að hafa rétt á því að skemmta sér í reyklausu umhverfi. Það sem mér finnst hins vegar fáránlegt er að þeir skuli svo sjálfir (bæði þeir sem um löggjöfina sjá og hinir sem sjá um að lögunum sé fylgt) kvarta svo yfir hávaða og mengun! Ef maður vísar liði út sem er, mögulega, í glasi þá má búast við hávaða. Ef þú vísar liði út sem reykir þá fylgja, auðvitað afgangarnir; stubbar. Hvernig væri að áður en svona lög eru sett, sé velt fyrir sér hvernig er hægt að komast hjá þessum vandamálum. Það sem fer í taugarnar á mér varðandi þessi lög er að svo virðist sem þeim hafi bara verið skellt í gegn en ekkert pælt í hvernig á að fylgja þeim eftir svo allir verði sáttir. Þetta er eins og að banna klósett og svo þegar allt er vaðandi í skít er kvartað yfir drullu og fnyk!

7 ummæli
Comments feed for this article
júlí 24, 2007 kl. 11:32 am
mamma
Lífið er ekki tekið út með sældinni. Það hefði átt að skoða endirinn á þessum lögum áður en þeim var skellt á. Það hefur heyrst að aðsókn á suma skemmtistaði hafi dregist saman um 70% út af reykingabanninu. Ef að þetta er raunin þá verða einhverjir staðir sem lognast út af síðar á árinu. Annars er ég sammála að banna reyk á skemmtistöðum en það verður að finna lausn. Og þetta fólk sem ekki getur sofið fyrir hávaða á bara að loka gluggunum.
júlí 24, 2007 kl. 2:41 pm
Helga Auður
Mamma! Þú ert greinilega með þetta allt á hreinu!!
júlí 25, 2007 kl. 12:42 am
Sigga pirr
Ef ég væri góð manneskja myndi ég bjóða þessum hávaðaseggjum heim til mín og leyfa þeim að reykja undir eldhúsháfnum mínum. Nágrannarnir halda hvort sem er (nú þegar) að ég sé biluð.
Og mér leiðist líka, ef þér líður betur við að heyra það. Ég eyddi deginum í að keyra út um allan bæ “að útrétta”, eldaði svo vondan mat (ég held mig við KFC hér eftir) og horfði svo á sjónvarpið. Og eina stöðin sem við höfum er Rúv!!!!
júlí 25, 2007 kl. 11:22 am
Helga Auður
Sigga: af öllu því sem þú sagðir þá var eitt sem stóð uppúr sem “the most shocking”: þú ert BARA með RÚV!!!!!
júlí 25, 2007 kl. 11:23 am
Helga Auður
Vil taka það fram að ég var ekki kaldhæðin hér að ofan, mér finnst þetta í alvöru hræðilegt mál!
júlí 26, 2007 kl. 11:12 pm
Sigga litla
Ég veit!!!!!!!!!!!
júlí 28, 2007 kl. 2:01 am
Heiðrún
Við Kiddó vorum líka bara með Rúv í sumarbústaðnum sem við vorum í og jú, eitt stykki vídjótæki. Það skemmtilega við þetta vídjótæki var að engar vídjóspólur var að finna í bústaðnum. Við Kiddó ætluðum að eiga gott vídjókvöld saman svo við rúntuðum í Borgarnes til þess að leigja okkur vídjóspólu en viti menn… það eru ENGAR vídjóleigur í Borgarnesi!!! Í Borgarnesi búa rúmlega 3700 manns og þar er ekki vídjóleigu að finna! Hvað gerir allt þetta fólk eiginlega? Þegar Kiddó var lítill voru fjórar vídjóleigur í Stykkishólmi og þar bjuggu þá um 1100 manns! Hann man ekki eftir því að hafa haft margt annað að gera en að horfa á vídjó á kvöldin.
En já, það var því ekkert úr vídjókvöldi okkar Kiddó en það voru Rúvkvöld nánast hvert einasta kvöld! :S Sorglegt en satt!